Fíkn eða frelsi?
Sálræn og félagsleg áhrif snjalltækja, samfélagsmiðla og tölvuleikja
31.1.2018, 12:00 – 13:30
Eru börnin okkar að verða þrælar tækninnar eða skilja íhaldssamir foreldrar ekki nýjan heim? Hvað geta foreldrar gert til að stuðla að því að börn nýti snjalltæki, samfélagsmiðla og tölvuleiki í uppbyggjandi tilgangi, í leik, námi og starfi? Hvað telst vera góð notkun og hvað ekki?
Þessum spurningum og fleirum verður leitast við að svara á málstofu á vegum Háskólans í Reykjavík, 31. janúar 2018 kl. 12-13:30 í stofu V101 í HR. Málstofan er haldin í samstarfi við Rannsóknir og greiningu, Heimili og skóla, SAFT og velferðarsvið Reykjavíkur.
Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi á slóðinni:
https://livestream.com/ru/fiknedafrelsi2018
Dagskrá:
12:00 Þorlákur Karlsson, dósent við sálfræðisvið HR: Af hverju er svona erfitt að leggja frá sér símann? Heljartak sálfræðilegra styrkingarhátta í samfélagsmiðlum og tölvuleikjum.
12:15 Ingibjörg Eva Þórisdóttir, doktorsnemi við sálfræðisvið HR: Snýst lífið um læk? – Niðurstöður rannsókna á sálfræðilegum áhrifum samfélagsmiðla meðal íslenskra unglinga.
12:30 Jóhanna María Svövudóttir, nemandi í tölvunarfræði og Ólafur Freyr Ólafsson, nemandi í viðskiptafræði í HR: Alltaf í beinni. Hvernig er að vera ungur í dag?
12:45 Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við íþróttafræðisvið HR og sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu: Rafrænn útivistartími. Lærdómur úr fyrri forvarnarátökum.
13:00 Björn Hjálmarsson barna – og unglingageðlæknir, Barna- og unglingageðdeild LSH: Hvað er heilbrigður skjátími? – Leiðbeiningar Bandarísku barnalæknasamtakanna frá 2016.
13:15 Umræður
Fundarstjóri: Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
Málstofan er öllum opin og allir eru velkomnir.
Recent Comments