Til hvers er SAFT?
  • Að hanna og framkvæma markvisst vakningarátak um örugga og ábyrga notkun á Netinu og tengdum miðlum.
  • Að efla vitund um hvernig hægt er að njóta Netsins og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræðandi hátt.

 

Markhópar

  • Börn og unglingar
  • Foreldrar
  • Skólakerfið
  • Netþjónustuaðilar

 

Áherslur

  • Siðferði á netinu
  • Tölvuleikir
  • Persónuvernd
  • Gagnrýnin netnotkun
  • Farsímaöryggi

 

Leiðir

  • Dreifing kennsluefnis í grunnskóla og viðbætur við það sem fyrir er á þessari vefsíðu.
  • Fræðsla meðal unglinga, m.a. með jafningjafræðslu.
  • Söfnun og dreifing upplýsinga t.d. um notkun tölvuleikja meðal barna, um hvort munur er á notkun kynjanna á Netinu og nýjum miðlum og um mismunandi notkun þessara miðla í eldri og yngri hópum barna.
  • Markvisst fræðslu- og upplýsingaátak fyrir foreldra svo þeir verði betur í stakk búnir til að fræða börn sín og njóta Netsins og nýrra miðla með þeim.
  • Víðtækt samstarf - samræmt átak á landsvísu við aðila innan stjórnsýslunnar, þá sem koma að menntun og tómstundastarfi barna og unglinga, netþjónustuaðila, forvarnaraðila, foreldra, fjölmiðla og börn og unglinga.

Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum