|
Barnaheill |
Rannsóknir og greining |
|
Capacent Gallup |
Ríkislögreglustjóri |
|
Háskóli Íslands |
Samgönguráðuneytið |
|
Lýðheilsustöð |
Samtónn |
|
Menntamálaráðuneytið |
SÍA |
|
Microsoft Íslandi |
Síminn |
|
Námsgagnastofnun |
Smáís |
|
Miðlar 365 |
Talsmaður neytenda |
|
Neytendasamtökin |
Umboðsmaður barna |
|
Vodafone |
Félag upplýsingatæknikennarar |
|
Persónuvernd |
Forsætisráðuneytið, Skrifstofa upplýsingasamfélagsins |
|
Póst- og fjarskiptastofnun |
Nova |
|
Responsable surfing |
Ungmennaráð SAFT |
|
Game tíví |
Barnaverndarstofa |
|
Hugsandi menn |
Icelandic Gaming Industry |
|
Kynferðisbrotadeild lögreglustjórans á höfuðborgasvæðinu |
|
Samstarf við önnur lönd í Evrópu
* 27 lönd þátttakendur í Safer Internet Action áætlun ESB
* Þátttaka í samstarfi þátttökulanda, INSAFE
* Þátttaka í alþjóðlegu rannsóknarverkefni, EU Kids Online
SAFT er vakningarátak um örugga notkun íslenskra barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum. Verkefnið er unnið innan aðgerðaáætlunar Evrópusambandsins um aukið öryggi á Netinu (SIAP- Safer Internet Action Plan) og nýtur þaðan fjárstuðnings.
SAFT er í nánu samstarfi við önnur lönd í Evrópu sem eru aðilar að SIAP. Hver þjóð vinnur í sínu landi og á sínum forsendum en samstarf þjóðanna felst fyrst og fremst í að deila þekkingu og aðferðafræði þannig að til verði sameiginlegur brunnur fróðleiks og þekkingar um hvernig best er að vinna að öruggri og jákvæðri notkun barna og unglinga á Netinu og þeim miðlum sem því tengjast.
Samstarfsnet þjóðanna sem þátt taka í verkefninu ber heitið Insafe. Á Alþjóðlega netöryggisdaginn 8. febrúar 2005 var opnuð vefgáttin www.saferinternet.org. Þar eru upplýsingar um þátttökuþjóðirnar í verkefninu og þau verkefni sem verið er að vinna í hverju landi.
SAFT 2002 - 2004
SAFT - Safety, Awareness, Facts and Tools) var rannsóknar- og fræðsluverkefni sem stutt var af Safer Internet Action Plan verkefnaáætlun Evrópusambandsins. Í samstarfshópi SAFT voru 7 aðilar frá 5 Evrópulöndum: Danmörku, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Írlandi. Fyrir Íslands hönd tók Heimili og skóli landssamtök foreldra þátt í samstarfinu. Gerðar voru kannanir á netnotkun barna í hverju landi. Einnig var búið til kennsluefni fyrir 4. -6. bekk grunnskóla um örugga og ábyrga netnotkun.
Þeir aðilar sem þátt tóku í verkefninu voru:
Ísland:
Heimili og skóli
Noregur:
Statens filmtilsyn
IKT-Norge
Markeds- og mediainstituttet AS
Danmörk:
Medierådet for børn og unge
Írland:
National centre for technology in education
Svíþjóð:
Rådet mot skadliga våldsskildringar