Hvað er SAFT?
SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, er
vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga á Íslandi.
Verkefnið hófst 1. október 2004 og er til tveggja ára. Það er hluti af
Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari
netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er
menntamálaráðuneytið sem hefur falið Heimili og skóla - landssamtökum foreldra að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd.
Heimili og skóli er í samstarfi við önnur lönd í Evrópu og deilir með þeim upplýsingum, aðferðafræði og þekkingu. Markmiðið er að til verði sameiginlegur evrópskur sjóður þekkingar og aðferðafræði á þessu sviði sem styður hið jákvæða og hamlar gegn neikvæðum hliðum upplýsingatækninnar.
Verkefnastjóri