Heimili og skóli – landssamtök foreldra, hefur rekið vakningarátak um örugga netnotkun á Íslandi síðan í október 2004. Verkefnið, sem er styrkt af aðgerðaáætlun ESB um örugga netnotkun, hefur frá upphafi gengið undir nafninu Samfélag, fjölskylda og tækni, skammstafað SAFT. Verkefnið er hluti af INSAFE, evrópsku samstarfsneti um örugga netnotkun.
Eitt af aðalmarkmiðum verkefnisins er að koma á framfæri upplýsingum um öryggi á netinu til barna, foreldra og kennara og skapa vettvang til umræðna um kosti og galla netsins og tengdra miðla.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn er í dag haldinn hátíðlegur í 50 löndum. Í ár er dagurinn tileinkaður rafrænu einelti. Yfir hundrað viðburða eru þegar skráðir í yfir 50 þátttökulöndum, en ráðherra upplýsingamála og fjölmiðla Evrópusambandsins Vivian Reding setur dagskrána við hátíðlega athöfn í Luxembourg.
Á Íslandi standa Heimili og skóli, SAFT, Síminn, Microsoft Íslandi, menntamálaráðuneytið og Lýðheilsustöð sameiginlega að málþingi um rafrænt einelti. Hér á eftir verður m.a. fjallað um ýmsar tegundir og birtingaform rafræns eineltis, nýja rannsókn, mæðgur segja frá reynslu sinni, við heyrum um tæknilegt umhverfi rafræns eineltis og eftirlit foreldra, afskipti og meðferð lögreglunnar á rafrænu einelti, og sál- og félagsfræðilegar hliðar eineltis.
Samkvæmt rannsóknum okkar þá segja 16% grunnskólabarna árið 2007 hafa fengið sendan tölvupóst sem olli þeim áhyggjum eða hræddi það, en hlutfallið var 13% árið 2003, en helmingi líklegra var að stúlkur fengju slíkan póst en drengir. Um 15% barna segist árið 2007 hafa orðið fyrir áreitni, strítt, ógnað eða farið hjá sér í gengum spjall eða á félagsnetsíðum síðustu 6 mánuði, hlutfallið var 10% 2003. Þessar tölur og nýleg dæmi sem við höfum heyrt af í fjölmiðlum benda til þess að vandinn sé raunverulegur og hann fer vaxandi og því er verkefnið brýnt.
Nýverið gaf SAFT út DVD kennsludisk um ábyrga og jákvæða netnotkun ásamt kennsluleiðbeiningum. Hann inniheldur fimm myndbönd um örugga og jákvæða netnotkun auk ellefu námseininga til notkunar í lífsleikni- og/eða upplýsingatæknikennslu fyrir 9-16 ára börn og unglinga. Viðfangsefni námseininganna er m.a. hvernig við notum netið, nettælingu, gagnrýnin netnotkun og rafrænt einelti. Disknum hefur nú verið dreift í alla grunnskóla landsins.
Meðal annarra helstu verkefna SAFT 2009 og 2010 eru: samstarfverkefni um þróun rafrænna skilríkja, með sérstaka áherslu á ungt fólk á netinu; félagsnetsíður, netleikir og farsímanotkun; fyrirlestrar um allt land; sett verður á laggirnar ungmennaráði þar sem áhersla verður lögð á jafningjafræðslu; gerð leiðbeininga um „góða starfssiði“ fyrir netþjónustuaðila; og útgáfa námsefnis fyrir yngsta og miðstig grunnskóla, svo fátt eitt sé nefnt.
Í tilefni dagsins hefur INSAFE, evrópska samstarfsnetið um örugga netnotkun, staðið fyrir gerð auglýsinga þar sem vakin er athygli á rafrænu einelti.