1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu
- - -
1. Allt sem þú gerir á Netinu endurspeglar hver þú ert
Allt sem við gerum og segjum er endurspeglun á því hvernig
við hugsum og hvað við sjáum í kring um okkur. Þó aðrir þekki okkur
ekki vitum við alltaf sjálf hver við erum. Stundum veljum við að koma
fram á Netinu undir dulnefni eða nafnlaust. Það getur stundum verið
nauðsynlegt og stundum skemmtilegt, en við getum ekki verið nafnlaus
eða undir dulnefni gagnvart okkur sjálfum. Þess vegna viljum við vera
sátt við allt sem við gerum og geta litið í eigin barm án þess að líða
illa.
2. Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig
Það er auðvelt að nota Netið til að særa annað fólk. Ljót
skrif eða myndbirtingar af öðrum eru ofbeldi gagnvart öðrum og geta
valdið mikilli vanlíðan. Þær valda vanlíðan hjá þeim sem verður fyrir
því og þær valda líka vanlíðan hjá þeim sem setur slíkt á Netið.
Mörgum líður illa og eru með samviskubit vegna þess að þeir hafa sært
aðra. Þegar við setjum ljótt efni á Netið um einhvern annan er það
opið fyrir alla og það er aldrei hægt að taka það aftur. Hugsum okkur
því vel um áður en við segjum eitthvað eða setjum efni á Netið sem
getur sært eða meitt aðra manneskju. Komum fram við aðra eins og við
viljum láta koma fram við okkur.
3. Ekki taka þátt í neinu sem þú veist ekki hvað er
Það er nauðsynlegt að vita alltaf hvað maður er að gera þegar
maður tekur þátt í einhverju á Netinu. Það getur verið hættulegt að
vera í samskiptum við fólk sem maður þekkir ekki nema í gegn um Netið.
Förum varlega þegar við gefum persónulegar upplýsingar um okkur á
Netinu. Það getur valdið miklum vandræðum að setja upplýsingar um sig
á Netið ef maður veit ekki hver fær upplýsingarnar. Margir hafa fengið
vírus sem skemmt hefur tölvuna eða eru í miklum vandræðum með ruslpóst
vegna þess að þeir hafa skráð sig inn á vefsíður sem þeir þekkja ekki
og vita ekki hverjir halda úti.
Það er líka nauðsynlegt að athuga vel hvort hægt er að treysta
upplýsingum sem fengnar eru af Netinu. Athugum hvaðan upplýsingarnar
eru og hvort þær eru réttar áður en við notum þær.
4. Mundu að efni sem þú setur á Netið er öllum opið, alltaf
Það er ekkert einkalíf til á Netinu. Allt sem sett er þar inn
er opið fyrir alla, alltaf. Ef við viljum ekki að allir sjái hvað við
erum að segja eða gera skulum við ekki setja það á Netið. Hver sem er
getur skoðað bloggsíður
og annað sem við setjum á Netið og auðvelt er að finna vefsíður. Hver sem
er getur líka náð í það efni sem við setjum á Netið og vistað það hjá sér.
Þess vegna þurfum við að hugsa okkur vel um áður en við setjum
upplýsingar um okkur eða myndir af okkur eða öðrum á Netið. Þó við
tökum þær út af vefsíðunum okkar getur hver sem er náð í þær meðan þær
eru inni.
5. Þú berð ábyrgð á því sem þú segir og gerir á Netinu
Við berum ábyrgð á því sem við segjum og gerum. Það á við um Netið
eins og allt annað. Þess vegna þurfum við að geta svarað fyrir allt sem
við setjum þar inn. Hægt er að rekja tölvupóst og allar færslur sem
settar eru inn á Netsíður. Það er ekki notaleg tilhugsun að þurfa að
standa frammi fyrir foreldrum, skólastjórnendum, vinnuveitanda eða
jafnvel lögreglunni og þurfa að svara fyrir eitthvað sem við hefðum
ekki átt að setja á Netið. Munum líka að lögin í landinu gilda líka um
það sem fólk gerir á Netinu.