NÝTT KENNSLUEFNI UM ÁBYRGA OG JÁKVÆÐA NETNOTKUN

SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak Heimilis og skóla um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, og Myndstef hafa gefið út DVD disk með kennsluefni og myndefni um ábyrga og jákvæða netnotkun ásamt kennsluleiðbeiningum. Disknum hefur verið dreift í alla grunnskóla landsins.

DVD diskurinn inniheldur fjögur myndbönd um örugga og jákvæða netnotkun auk fimm stuttra leikþátta sem nemendur í Háteigsskóla sömdu og fluttu í Borgarleikhúsinu á síðasta ár. Auk þessa inniheldur diskurinn ellefu námseininga til notkunar í lífsleikni- og/eða upplýsingatæknikennslu fyrir 9-16 ára börn og unglinga. Viðfangsefni námseininganna er m.a. hvernig við notum netið, tölvupóst, spjallrásir, farsíma, um einelti á netinu, nettælingu, siðferði á netinu, höfundarétt, blogg og gagnrýnin netnotkun.

Hægt er að hala niður efni DVD hér fyrir neðan 

Kennsluefni (DVD)
* Hvernig notum við netið?
* Tölvupóstur
* Spjall
* Farsímar
* Einelti á netinu
* Er Lalli heima?
* Nettæling
* Siðferði á netinu
* Höfundaréttur - Ég veit að þetta má ekki en það gera það allir
* Blogg
* Gagnrýnin netnotkun

Myndefni
* AUGA
* Er Lalli heima?
* 5 leikþættir frá Háteigsskóla
* Ég veit að þetta má ekki en það gera það allir

Hulstur, bækling og krossgátur með DVD er hægt að hala niður hér:
* Hulstur
* Bæklingur
* Krossgátur


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum