Markmið sýningarinnar er að kynna nýjungar, þjónustu og möguleika sem eru í boði á íslenskum netmarkaði.
Fjölmörg fyrirtæki munu kynna sína þjónustu, allt frá vefsíðum og hönnun til upplýsingaveita og viðskipta.Netið er vaxandi þjónustu-, samskipta- og viðskiptamiðill þar sem öryggi og traust milli neytenda og þjónustuaðila verður sífellt mikilvægari. Á sýningunni verða kynntar spennandi nýjungar á netmarkaðnum, nokkur sprotafyrirtæki kynna afurðir sína og sýna fram á hvernig lítil hugmynd hefur orðið til þess að fyrirtækin eiga nú í viðskiptum út um allan heim.
Fyrirtækin munu mörg hver gefa afslætti af vörum sínum, í gangi verður happdrætti og á boðstólnum verða tónlistaratriði og margt fleira. Bylgjan verður í beinni útsendingu frá Vetrargarðinum.