Microsoft sendir út aðvörun: Hvað svo sem þú gerir - EKKI ýta á þennan takka á tölvunni

 

pressan.is 02. mar. 2010 - 16:07

Microsoft sendir út aðvörun: Hvað svo sem þú gerir - EKKI ýta á þennan takka á tölvunni

Microsoft hefur sent út aðvörun til tölvunotenda og varar eindregið við að þeir ýti á F1 takka tölvunnar.  Þar gæti leynst öryggisgalli.

F1 takkinn er efst til vinstri á tölvunni og er yfirleitt notaður til að ná í hjálpar lista í Windows forritinu. En nú gæti hjálpin verið úlfur í sauðagæru ef eitthvað er að marka viðvörun Microsoft fyrirtækisins.

Það eru notendur Windows XP sem eru í mestri hættu því óprúttnir tölvuþrjótar hafa nú nýtt sér glufu í kerfinu til að brjótast inn í tölvukerfi og það með aðstoð F1 takkans.  Þannig hafa þeir sett inn tölvukóða inn á ákveðnar síður og þar koma upp skilaboð um að ýta á F1 takkann.  Geri notandinn það geta tölvuþrjótarnir náð valdi á tölvunni.

David Ross í öryggisdeild Microsoft segir þetta þrálátt vandamál.

Beiðnin um að ýta á takkann getur komið upp aftur og aftur jafnvel þó þú hunsir hana. Microsoft mun grípa til nauðsynlegra aðgerða til að verja viðskiptavini sína og eina ráðið sem hægt er að gefa notendum Windows XP er að ýta ekki á F1 takkann.
Microsoft hefur ekki enn sent út formlega viðvörun um þetta mál. Öryggisbúnaður XP verður uppfærður 9. mars næst komandi.


Heimili og skóli - Suðurlandsbraut 24, 4.hæð - 108 Reykjavík - sími: 562 7475 - saft@saft.is
Keyrir á WebEd Pro frá Hugsandi Mönnum