Svona lítur kjörkassinn út sem Microsoft býður upp á.
ESB og Microsoft hafa átt í áralangri deilu fyrir dómstólum vegna þeirrar einokunar sem Internet Explorer frá Microsoft hafði í hverri nýrri tölvu sem var keypt. Taldi ESB það grófa misnotkun á markaðsráðandi stöðu Microsoft. Telur ESB að kjörkassinn svokallaði komi til móts við samkeppnisaðilana.
Kjörkassinn birtist þeim sem nota Windows XP, Vista og Windows 7 við næstu uppfærslu á stýrikerfunum og hafa ekki nú þegar aðra vafra en Internet Explorer. Kjörkassinn býður notendum upp á 12 tegundir vafra, svo sem Internet Explorer, Mozilla Firefox, Google Chrome og Opera, sem og óþekktari vafra eins og K-meleon og Sleipnir. Sá síðastnefndi er, þrátt fyrir nafnið, japanskur en ekki íslenskur en fyrirtækið sem þróar vafrann heitir Fenrir. Er því nokkuð augljóst hvert nafnið er sótt.
Neelie Kroes, framkvæmdastjóri samkeppnismála hjá ESB og oft nefnd „frú Microsoft“ vegna baráttu hennar gegn einokunartilburðum Microsoft, fagnar framtakinu. Segir hún að milljónir neytenda innan Evrópska efnahagssvæðisins komi til með að njóta þess frelsis sem kjörkassinn býður upp á, auk þess sem þetta hvetji framleiðendur til að halda áfram að þróa vörur sínar.