Gátlisti
Lestu eftirfarandi. Ef þú svarar já, það er satt við þeim öllum ertu í góðum málum með örugga netnotkun.
- Ég veiti aldrei persónulegar upplýsingar á spjallrás.
- Ég segi fullorðnum frá ef ég finn eitthvað ógeðslegt á Netinu.
- Ég haga mér alltaf á Netinu eins og ég vil láta koma fram við mig.
- Ég móðga engan á Netinu, jafnvel ekki í gríni. Kannski skilur fólk það ekki þannig.
- Ég skemmti mér alltaf á Netinu og man að netheimurinn er ekki raunverulegur.
- Ég segi öðrum frá reynslu minni á Netinu.
- Ég sannreyni alltaf efni sem ég finn á Netinu.
- Ég bið foreldra/forráðamenn um leyfi áður en ég kaupi eitthvað á Netinu.
- Ég tek mér reglulega hlé frá Netinu.
- Ég bið ekki aðra um persónulegar upplýsingar.
- Ég hef ekki áhuga á efni fyrir fullorðna. Það er fyrir eldra fólk.
- Afritun af Netinu er hugsanlega ólögleg. Ég bið alltaf eiganda vefsíðu um leyfi til að nota efni af Netinu.
- Ég afrita aldrei efni í stórum stíl af Netinu fyrir heimaverkefnin mín. Það er svindl.
- Ef einhver sendir mér tölvupóst sem mér líkar illa sendi ég hann aldrei áfram á aðra.